Njarðvík hefur samið við framherjann Ólaf Helga Jónsson um að leika með félaginu næstu 3 árin, en hann hafði leikið með Þór síðustu tvö. Þar á undan lék hafði hann aðeins leikið fyrir uppeldisfélag sitt í Njarðvík.
Á síðasta tímabili skilaði hann 9 stigum, 7 fráköstum, stoðsendingu, stolnum bolta og vörðu skoti að meðaltali á 29 mínútum í leik. Þór endaði í 9. sæti deildarinnar, aðeins nokkrum stigum frá sæti í úrslitakeppninni.
Ólafur fylgir þjálfara sínum Einari Árna Jóhannssyni aftur til Njarðvíkur, en Einar er einnig kominn heim eftir að hafa verið í Þorlákshöfn síðustu þrjú tímabil.
Samkvæmt umfn.is:
„Við í stjórn körfuknattleiksdeildarinnar erum hæstánægð með að endurheimta Ólaf í okkar raðir enda gríðarlega öflugur leikmaður og sterkur karakter. Eins og glöggt má sjá er undirbúningur fyrir næstu leiktíð í fullum gangi því það er ekkert leyndarmál í Njarðvík að hér vill fólk aðeins berjast í og við toppinn,“ sagði Friðrik Pétur formaður Körfuknattleiksdeildar UMFN.
Aðspurður um heimkomuna sagðist Ólafur spenntur að leika á ný með uppeldisfélagi sínu og vinum. „Hér þekki ég best til og tel okkur vera að setja saman mjög sterkan hóp fyrir næstu leiktíð. Vissulega eru fleiri púsl sem eiga eftir að koma saman en þetta lítur vel út og ég er mjög spenntur.“



