HomeFréttirÓlafur: Förum í Höllina til að sækja titil

Ólafur: Förum í Höllina til að sækja titil

 
Ólafur Ólafsson er að koma í Laugardalshöll annað árið í röð en hann var í liði Grindvíkinga á síðasta tímabili sem tapaði í hörku bikarúrslitaleik gegn Snæfell í Laugardalshöll. Í dag verður Ólafur í eldlínunni með gulum sem mæta KR kl. 16:00 í Poweradebikarúrslitunum í Höllinni.
,,Ég skemmti mér vel í fyrra í bikarúrslitaleiknum í svona 35 mínútur, þetta var ógeðslega gaman í fyrra, fyrir utan tapið að sjálfsögðu, en þetta var mikil reynsla og ég er ekki búinn að vinna neinn alvöru titil á ferlinum svo ég er gífurlega spenntur. Ekki laust við að það sé smá stress í mér en maður verður búinn að gíra sig vel upp áður en maður mætir í Höllina,” sagði Ólafur sem er borinn og barnfæddur Grindvíkingur og hefur því séð nokkra bikartitla keyrða inn fyrir bæjarmörkin.
 
,,Ég man vel eftir þessu árið 2000 og 2006 og svo eru eldri leikirnir til heima á spólu og ég kann þá alveg utan að. Búinn að stúdera þá leiki fram og til baka og það væri ekki leiðinlegt að fá að upplifa svona sjálfur sem leikmaður,” sagði Ólafur en varðandi leikinn sjálfan, telur Ólafur eins og svo margir að það sé eðliegast að segja KR sigurstranglegra liðið?
 
,,Nei ég myndi ekki segja það, flestir halda örugglega að KR-ingarnir vinni þetta miðað við hvernig liðin hafa verið að spila í deildinni. Það hefur ekki vantað yfirlýsingarnar hjá KR en ég vitna bara í það sem Páll Axel sagði við Morgunblaðið, þeir þurfa fyrst að spila við okkur. Við ætlum ekkert að gefa þetta eftir og förum í Höllina til að sækja titil.”
 
Poweradebikarúrslit í Höllinni í dag
13:30 KR-Keflavík í kvennaflokki
16:00 KR-Grindavík í karlaflokki
 
Miðasala á www.midi.is  
 
Fréttir
- Auglýsing -