HomeBónus deildinBónus deild kvennaÖflugur seinni hálfleikur skóp sigur Tindastóls gegn Keflavík 

Öflugur seinni hálfleikur skóp sigur Tindastóls gegn Keflavík 

Tindastóll hóf leiktíðina í Bónus deildinni af miklum krafti með 73–58 heimasigri á Keflavík á Sauðárkróki að viðstöddum 253 áhorfendum.

Jafnræði var með liðunum framan af og staðan jöfn í leikhléi, 40–40, en Skagfirðingar gerðu vel í síðari hálfleik þar sem þeir héldu gestunum í aðeins 18 stigum samtals, þar af aðeins átta í fjórða leikhluta.  

Quinzía Jamecia fór fyrir liði heimakvenna og skilaði glæsilegri tvennu með 18 stigum og 10 fráköstum. Florencia Chagas setti niður 14 stig og tók níu fráköst, Kolbrún María Ármannsdóttir bætti við 13 stigum og átta fráköstum og Macarena Durso stjórnaði sóknarleiknum vel með 13 stig og fimm stoðsendingar. Stólarnir voru mun sterkari í baráttunni undir körfunni og unnu frákastabaráttuna með yfirburðum, 53 gegn 39.  

Sóknarleikur Keflavíkur hikstaði verulega fyrir utan þriggja stiga línuna en liðið hitti aðeins úr fjórum skotum af 30 fyrir utan bogann (13% nýting). Amaiquen Siciliano var stigahæst gestanna með 11 stig, Emelía Ósk Gunnarsdóttir skilaði 10 stigum og sjö fráköstum, Thelma Dís Ágústsdóttir bætti við 9 stigum og Hannah Little tók 11 fráköst.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -