Um helgina var Oddur Ólafsson kjörinn Íþróttamaður Hamars fyrir árið 2010 og þá varð hann einnig meistari með miðskólaliði sínu Fayettevilli í Bandaríkjunum þar sem hann stundar nú nám og leikur körfubolta. Oddur og Fayetteville unnu sinn riðil ytra og í kvöld hefst úrslitakeppni miðskóla í Norður-Karólínufylki þar sem Fayettevill er talið á meðal fimm sterkustu liðanna.
,,Við unnum alla leiki okkar í riðlinum, tíu talsins og förum því efstir inn í úrslitakeppnina sem er útsláttarfyrirkomulag,” sagði Oddur um framhaldið með Fayetteville sem sat hjá í fyrstu umferð þegar leikið var til úrslita í riðlinum.
,,Við spiluðum svo í undanúrslitum. Þar unnum við skóla sem heitir Harrels og var það frekar auðveldur sigur. Í úrslitaleiknum spiluðum við á móti skóla sem heitir Village. Það er nágrannaskóli og mikill rígur á milli skólana. Báðir leikirnir sem við spiluðu á móti þeim í riðlakeppnini voru mjög jafnir. Unnum þann fyrsta í framlengingu 71-67. Seinni leikurinn var á okkar heimavelli og unnum við 66-61. Úrslitaleikurinn var jafn framan af og voru við einu stigi yfir í hálfleik, 31-30. Í þriðja leikhluta stungum við af og staðan var 49-34 eftir þriðja leikhluta. Fjórði leikhluti var frekar jafn en leikurinn endaði 69-59,” sagði Oddur hógvær sem gerði 15 stig, gaf 4 stoðsendingar og tók 3 fráköst í úrslitaleiknum. Oddur var svo valinn í úrvalslið úrslitakeppninnar sem og úrvalslið riðilsins.
Oddur verður því í eldlínunni í kvöld með Fayetteville og það dugir fátt annað en sigur í útsláttakeppninni, annars er komið frí.
Þá hlotnaðist kappanum sá heiður um helgina að vera útnefndur Íþróttamaður Hamars fyrir árið 2010. Hér fylgir með umsögn um kappanna frá heimasíðu Hamars:
Á aðalfundi Íþróttafélagsins Hamars, sunnudaginn 20. febrúar 2011 var Oddur Ólafsson, körfuknattleiksmaður, krýndur íþróttamaður Hamars 2010. Oddur var lykilmaður í meistaraflokki Hamars tímabilið 2009-2010 of fyrirliði sameiginlegs liðs Hamars/Þórs í unglingaflokki sem varð bikarmeistari sl.vor sælla minninga en þar var Oddur valinn maður leiksins og tók við bikarnum sem fyrirliði okkar drengja þar. Hann var einnig fyrirliði unglingalandsliðs Íslands sem varð Norðurlandameistari í Svíþjóð sl. sumar. Oddur stundar nám í Bandaríkjunum og tóku foreldrar hans, Margrét Stefásddóttir og Ólafur Hafsteinn Einarsson, við verðlaununum. Óskar stjórn KKd. Hamars Oddi til hamingju með titilinn!
Mynd/ Oddur á ferðinni með Fayettville





