spot_img
HomeFréttirNýjar merkingar á körfuboltavelli ásamt breytingum á skotklukku

Nýjar merkingar á körfuboltavelli ásamt breytingum á skotklukku

 
 
Alþjóða Körfuknattleikssambandið – FIBA World ákvað fyrir nokkru að breyta merkingum á körfuknattleiksvöllum sem er meðal annars liður í því að leikurinn verði alls staðar eins hvort sem um er að ræða NBA deildina í Bandaríkjunum eða deildir annars staðar í veröldinni. Einnig munu verða breytingar á reglum um skotklukku. www.kki.is greinir frá.
Keppt verður eftir þessum nýju merkingum og breytingu á skotklukku í ýmsum löndum Evrópu í vetur en FIBA Europe setti það sem skilyrði fyrir þau lið sem taka þátt í Evrópukeppnum félagsliða að leikið yrði við þessar nýju aðstæður frá hausti 2010.
 
KKÍ ákvað eins og ýmsar aðrar þjóðir að taka þessar nýju reglur í gildi frá og með keppnistímabilinu 2011-2012. Með því gefst sveitarfélögum og félögum meiri tími í að gera viðeigandi ráðstafanir.
 
Þessar breytingar hafa verið tilkynntar viðeigandi aðilum eins og félögunum, sveitarfélögunum og rekstraraðilum íþróttahúsa.
 
Nú þegar hafa mörg hús sem voru með á dagskránni að laga eða endurnýja gólf, sett upp nýju línurnar og meðal þeirra eru KFÍ og ÍR. Núverandi leiklínur hafa því verið settar með til bráðabirgða út þetta tímabil.
 
Í stuttu máli færist þriggja stiga línan utar og teigurinn verður kassalaga með ruðningsfríu svæði undir körfunni.
 
Breytingar á merkingum og skotklukku innihalda eftirfarandi:
• Þriggja stiga línan færist frá 6.25m í 6.75m
• Breytt lögun á svæðinu (takmarkaða svæðinu) innan vítateigs. Það verður ferhyrnt í stað trapisulaga.
• Ruðningsfrír hálfhringur sem kemur undir körfuna innan takmarkaða svæðisins.
• Innkastslína við hliðarlínu þar sem innköst verða tekin þegar lið kemur út úr leikhléi og minna en 2 mínútur eru eftir af leiknum. Í framlengingu eru innköst einnig tekin frá þessarri nýju línu eftir leikhlé. Staðsetning þessarar línu er í beinni línu út frá efsta boga þriggjastigalínunnar.
• Með breyttri reglu á skotklukku þarf að vera hægt að endursetja í 14 sek. og einnig í 24 sek. eins og er í dag. Ef 13 sekúndur eða minna eru eftir á skotklukkunni þegar leikur er stöðvaður við villu, fót eða aðrar aðstæður þar sem klukkan hefði verið endurstillt í 24 sek. og lið er á sóknarhelmingi skal endursetja skotklukkuna á 14 sekúndur.
 
Þessar breytingar verða svo kynntar nánar þegar nær dregur.
 
Fréttir
- Auglýsing -