spot_img
HomeFréttirNý vefsíða

Ný vefsíða

 Góðan daginn gott fólk og velkomin á nýja heimasíðu Karfan.is  Vinna við síðuna hefur staðið núna í þó nokkrun tíma og þeir snillingarnir hjá Smartmedia hafa staðið þétt á bakvið okkur í öllu sem því við kemur.  Við hönnun síðurnar var reynt að einfalda hlutina eins mögulega og hægt var. Margt af gömlu síðunni var aldrei notað og það var því tekið út. Og svo var nýju efni líkt og Twitter bætt inn. 
 Í raun er núna síðunni skipt í tvo hluta, þar að segja forsíðunni.  Efri hlutinn er ætlaður fréttum, þeim nýjustu (Ferskt efni) og svo hlekkjum.  Neðri hlutinn er svo tileinkaður töluvert meiri upplýsingum líkt og staða Dominosdeilda og auðvelt aðgengi að Live Stat kerfinu, nýjustu úrslitum, næstu leikir og svo framvegis.  Þá er Karfan TV og Myndirnar einnig í neðri hlutanum.  Það sem bætist svo við er Twitter umræðan og hvetjum við alla þá sem “tísta” að setja hashtag á stikkorðin #körfubolti eða #korfubolti, einnig pikkar hún upp #dominosdeildin. 
 
Ný heimasíða er nær undantekningalaust “umdeild”  Flestir vilja bara hafa þetta eins og þetta var. En mikil vinna var lögð í það að hafa síðuna nútímalega og um leið auðvelda og erum við sannfærðir að þetta sé skref í þá átt. 
 
F.h. Karfan.is
Fréttir
- Auglýsing -