Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn út á öllum hlaðvarpsveitum. Í þættinum kafa Mummi Jones og Jónfrí í dramatíkina í oddaleikjum undanúrslitanna þar sem Grindavík og Tindastóll tryggðu sér sæti í úrslitum.
Farið er yfir sigra deildarmeistara Grindavíkur á Val og Tindastóls á Stjörnunni, rýnt í hvað fór úrskeiðis hjá tapliðunum og dregið fram það helsta sem gladdi augað í þessum ógleymanlegu seríum. Þá er úrslitaeinvígið skoðað í þaula, lykilatriðin greind og sett saman sameiginlegt „besta byrjunarlið“ beggja liða.
Hérna er Aukasendingin á Spotify

Nokkrir hlutir sem glöddu í Grindavík
- Jeremy Pargo – Ástæðan fyrir því að Aukasendingin mætti – Það var unun að sjá Pargo í þessu formi; sendingarnar, skotsýninguna og hvernig hann svífur leikandi létt fram hjá varnarmönnum. Hann sýnir mikla kænsku og finnur alltaf leiðir til að hafa áhrif á leikinn þótt stökkkrafturinn sé ekki sá sami og á hátindi ferilsins í Euroleague. Það skín í gegn að hann er að njóta síðustu metranna á ferlinum og er í mun betra standi en þegar hann sást hér á landi í fyrra.
- Ragnar Örn Bragason – Raggi Braga átti þvílíkan leik og svaraði fyrir sig eftir erfiðan leik síðast. Hann kveikti í stúkunni, steig upp þegar á reyndi og liðsfélagarnir leituðu mikið til hans. Það var fallegt augnablik eftir leik þegar hann fagnaði sigrinum.
- And-1 hjá Unnsteini – Eitt af stærstu mómentum leiksins var þegar Unnsteinn sótti körfu og víti gegn Kára. Hann sótti snertinguna af harðfylgi og kláraði gríðarlega vel, sem kveikti rækilega í húsinu og gaf leiðtogum Grindavíkur auka kraft á mikilvægum tímapunkti.
- Samstaða Grindvíkinga – Bæjarfélagið sameinaðist í gegnum körfuboltann og var ótrúleg stemmning í húsinu. Stuðningsmennirnir fögnuðu lengi eftir leik með söng og gleði fremur en látum. Það var einstakt að sjá alla taka þátt í þessari einingu.
- Umgjörð og aðstæður – HS Orku höllin er frábær heimavöllur og þar er meiri hlýja en í mörgum nýrri húsum. Umgjörðin var öll til fyrirmyndar; fanzone-ið skilaði sínu, sjoppan var með gott úrval og allir mættu til leiks með létt lund.




