Síðasti leikurinn í 16-liða úrslitum Subwaybikarsins fór fram í gærkvöldi þegar Grindavík b tók á móti UMFN í kvennaflokki. Leikurinn fór fram í Röstinni í Grindavík þar sem Njarðvíkingar höfðu yfirburðasigur.
Lokatölur leiksins voru 50-105 Njarðvík í vil þar sem Shantrell Moss var stigahæst með 19 stig í liði Njarðvíkur og næst henni var Ólöf Helga Pálsdóttir með 17 stig.
Dregið verður í 8-liða úrslit keppninnar eftir viku, eða þriðjudaginn 15. desember kl. 14:00.
Myndasafn frá viðureign Grindavíkur b og Njarðvíkur í gærkvöldi eftir Tomasz Kolodziejski




