HomeFréttirNjarðvíkingar á leið í sumarfrí?

Njarðvíkingar á leið í sumarfrí?

 
Þriðja undanúrslitaviðureign erkifjendanna úr Reykjanesbæ fer fram í kvöld þar sem Keflvíkingar geta með sigri tryggt sér sæti í úrslitum Iceland Express deildar karla. Keflavík leiðir einvígið 2-0 og hafði yfirburðasigur gegn grönnum sínum í síðasta leik.
Úrslit úr fyrstu tveimur leikjum liðanna:
 
Keflavík 89-78 Njarðvík
Njarðvík 79-103 Keflavík
 
Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst áfram í úrslitin og hallast flestir að því að Keflavík fari áfram enda afgerandi sigur Keflvíkinga að ræða þegar liðin mættust í Ljónagryfjunni í síðasta leik. Leikur kvöldsins fer fram í Toyota-höllinni og hefst kl. 19:15. Ekki verður sýnt beint frá leiknum en hægt að fylgjast með reglulegum stöðuuppfærslum hér á Karfan.is.
 
Keflavík-Njarðvík
Leikur 3
Toyota-höllin kl. 19:15
 
Fjölmennum á völlinn!
 
Fréttir
- Auglýsing -