Annar leikdagur Icelandic Glacial mótsins í Þorlákshöfn fór fram í dag. Í þessu fjögurra liða móti voru tveir leikir. Í þeim fyrri lagði Njarðvík lið Hattar, 85-76 og í þeim seinni unnu heimamenn í Þór lið Keflavíkur, 95-80. Fyrir lokadaginn er Þór því eina liðið sem sigrað hefur báða leiki sína, en þeir leika gegn Njarðvík á morgun á meðan að Höttur og Keflavík eigast við.
Úrslit dagsins:
Höttur 76 – 85 Njarðvík
Stig Njarðvíkur: Terrell Vinson 21, Maciej Baginski 16, Ragnar Nathnaelsson 10.
Stig Hattar: Taylor Stafford 32, Mirko Stefán Virijevic 13.
Keflavík 80 – 95 Þór
Stig Þórs: Halldór Garðar Hermannsson 25, Jesse Pellot-Rosa 20, Þorsteinn Már Ragnarsson 12, Magnús Breki Þórðarson 11, Emil Karel Einarsson 9, Snorri Hrafnkelsson 8, Adam Eiður Ásgeirsson 8.
Stig Keflavíkur: Raggi Örn Bragason 17, Kevin Young 14, Magnús Már Traustason 12, Ágúst Orrason 12, Guðmundur Jónsson 6, Arnór Sveinsson 6, Daði Lár Jónsson 6.
Mynd / Davíð Þór Guðlaugsson




