spot_img
HomeFréttirNjarðvík og ÍR með sigra

Njarðvík og ÍR með sigra

{mosimage}

 

 

 

Allt hreint mótið hófst í Ljónagryfjunni í Njarðvík í gærkvöldi þar sem Njarðvíkingurinn Friðrik Ragnarsson mætti með nýju lærisveinana sína frá Grindavík og atti þeim gegn heimamönnum.

Njarðvíkingar höfðu sigur í spennunleik 88-86 þar sem Jeb Ivey gerði 41 stig í leiknum. Hjá Grindavík var bandaríkjamaðurinn Steven Thomas með 22 stig.

Í hinum leik gærkvöldsins mættust KR og ÍR og höfðu ÍR-ingar þar betur 70-46. Hreggviður Magnússon gerði 36 stig í leiknum fyrir ÍR og ljóst að endurkoma hans í Seljaskólann hefur virkað sem vítamínssprauta á ÍR-inga. Mótið heldur svo áfram á sunnudags- og mánudagskvöld.

 

Mynd: www.vf.is Jeb Ivey gerði 41 stig í gær

Fréttir
- Auglýsing -