Haukar eru að landa einum stærstu félagaskiptum í sögu 1. deildar karla í körfubolta, samkvæmt heimildum Körfunnar, en litháíski miðherjinn Dominykas Milka hefur samið við Hafnarfjarðarliðið fyrir komandi tímabil.
Milka þarf vart að kynna fyrir íslenskum körfuboltaáhugamönnum. Hann hefur um árabil verið einn allra stöðugasti leikmaður efstu deildar hér á landi, hvort sem var í búningi Keflavíkur eða Njarðvíkur. Hann hefur verið óstöðvandi afl undir körfunni, raðað inn tvöföldum tvennum og oftar en ekki verið í umræðunni sem einn af betri leikmönnum deildarinnar.
Að fá leikmann af þessum gæðaflokki niður í næstefstu deild eru risatíðindi. Hér er án efa um að ræða einn stærsta bita í sögu 1. deildarinnar. Með þessum kaupum senda Haukamenn skýr skilaboð til allra keppinauta sinna: Ekkert annað en afgerandi meistaratitill og bein endurkoma í Bónus-deildina kemur til greina á Ásvöllum í vetur.




