Leikjum kvöldsins í Iceland Express deild karla er nú lokið. Snæfell vann stórsigur á Haukamönnum 120-77, á Ísafirði unnu Fjölnismenn gríðarlega mikilvægan sigur á heimamönnum 101-94 en að sama skapi mjög dýrt fyrir Ísfirðinga. Í Njarðvík var háspenna í nágrannaslagnum og eftir venjulegan leiktíma var staðan 93-93 eftir að Njarðvík átti lokaskotið. Að lokum hafði Njarðvík sigur, 104-102 og stefnir hraðbyri í úrslitakeppnina.
Í 1. deild karla lögðu Akureyrar Þórsarar nafna sína úr Þorlákshöfn örugglega og er þetta fyrsta tap Þorlákshafnarbúa í vetur. Lokatölur 96-76
Nánar síðar.
Mynd: Þorsteinn Eyþórsson





