HomeBónus deildinBónus deild kvennaNjarðvík hafði betur gegn Keflavík í háspennuleik í IceMar-höllinni

Njarðvík hafði betur gegn Keflavík í háspennuleik í IceMar-höllinni

Íslandsmeistarar Njarðvíkur fengu granna sína handan Reykjanesbrautarinnar í heimsókn í IceMar-höllina í kvöld. Bæði lið hófu tímabilið án sigurs í fyrstu umferðinni, sem jók enn á spennuna fyrirfram í þessum hefðbundna nágrannaslag.  

Njarðvíkingar mættu særðir til leiks þar sem Dani Rodriguez meiddist á fingri í leiknum gegn Val og verður líklega frá keppni fram að áramótum. Leikurinn fór af stað með miklum hraða líkt og þegar liðin mættust í Meistarakeppni KKÍ fyrir skemmstu. Keflvíkingar voru skrefinu á undan á upphafsmínútunum og gekk Njarðvík erfiðlega að hemja Hannah Little, sem skoraði 12 stig strax í fyrsta leikhluta. Heimakonur svöruðu hins vegar af krafti með góðri baráttu og frábærum kafla frá Helenu Rafnsdóttur, og var staðan jöfn, 25–25, eftir fyrstu tíu mínúturnar.

Jafnræði var með liðunum stærstan hluta annars leikhluta þar til Njarðvík náði átta stiga forystu rétt fyrir hlé. Gestirnir skoruðu hins vegar síðustu sex stig hálfleiksins og minnkuðu muninn í 47–45.

Mikil barátta hélt áfram í seinni hálfleik þar sem hvorugt lið gaf tommu eftir. Aðeins tvö vítaskot frá Little skildu liðin að eftir þrjá leikhluta, eftir að fyrsta flæðisvillan var dæmd í IceMar-höllinni. Á lokakaflanum tók Brittany Dinkins leikinn í sínar hendur hjá Njarðvík og reyndust fjögur dýrmæt stig frá henni vega þungt.

Keflavík fékk kjörið tækifæri þegar um tíu sekúndur voru eftir og leysti Thelmu Dís Ágústsdóttur í opið þriggja stiga skot til að jafna metin. Skotið dansaði á hringnum en fór ekki niður. Íslandsmeistarar Njarðvíkur lönduðu því sínum fyrsta deildarsigri í vetur, 83–79, en Keflvíkingar eru enn án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.  

Brittany Dinkins fór mikinn hjá Njarðvík í fjarveru Dani Rodriguez og skilaði 36 stigum, en Helena Rafnsdóttir átti sömuleiðis mjög öflugan leik. Hjá Keflavík var Hannah Little stigahæst með 27 stig eftir að hafa reynst vörn heimakvenna gríðarlega erfið viðureignar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -