Sameinað lið Njarðvíkur og Grindavíkur er bikarmeistari í 11. flokki karla eftir 77-72 spennusigur á KR. Maciej Baginski var valinn besti maður leiksins með 23 stig og 12 fráköst í liði Njarðvíkur/Grindavíkur.
KR-ingar urðu fyrir áfalli í upphafi leiks þegar Matthías Orri Sigurðarson missteig sig og hélt af velli, hann átti ekki afturkvæmt í KR liðið og var það dýrkeypt enda einn þeirra fremsti maður. Martin Hermannsson tók þá við hlutverki leikstjórnanda í liði KR og fórst það vel úr hendi. Varnarleikur beggja liða var flottur í fyrsta leikhluta og skotnýting þeirra því ekkert til að hrópa húrra fyrir.
Akureyringurinn Stefán Karel Torfason, miðherji U16 ára landsliðs Íslands sem varð Norðurlandameistari á síðata ári, er kominn í lið KR og var ekki lengi að næla sér í frákast þegar hann kom inn á völlinn og lét vel fyrir sér finna þegar hann tróð fyrir KR og kom röndóttum í 12-14. Njarðvík/Grindavík ætlaði ekki að láta KR um tilþrifin eina og sér í dag og því átti Jens Valgeir Óskarsson lokaorðið fyrir Njarðvík/Grindavík í leikhlutanum með stolnum bolta og troðslu en KR leiddi engu að síður 14-15 eftir fyrsta leikhluta.
Liðin skiptust á forystunni í upphafi annars leikhluta, Oddur Kristjánsson kom KR í 26-28 með þriggja stiga körfu en Maciej Baginski svaraði að bragði og Njarðvík/Grindavík komið yfir 29-28 og þessi þristur hjá Maciej hleypti kappi í kinn sinna manna sem settu í lás í vörninni og komu niður nokkrum góðum körfum og leiddu því 38-31 í hálfleik.
Maciej Baginski var stigahæstur hjá Njarðvík/Grindavík með 14 stig og 5 fráköst í hálfleik en Stefán Karel Torfason var með 10 stig og 5 fráköst í liði KR.

Elvar Friðriksson sækir inn í teig KR
Jens Valgeir Óskarsson átti fína spretti í upphafi fyrri hálfleiks og Njarðvík/Grindavík leiddi 46-37 þegar KR skellti sér í 2-3 svæðisvörn og hóf að saxa á forskotið. Sóknarleikur grænna riðlaðist fyrir vikið og eftir villu og körfu að auki frá Oddi Kristjánssyni höfðu KR-ingar jafnað metin 46-46. Jafnt var á öllum tölum fram undir lok þriðja leikhluta þegar Elvar Friðriksson bauð upp á tilþrif leiksins. KR hafði skorað og komist yfir 53-55 þegar fjórar sekúnur voru eftir af þriðja leikhluta, Elvar brunaði upp völlinn og var nýkominn inn fyrir miðju þegar hann sleppti lítilli bæn í loftið sem fór í spjaldið og ofaní, Njarðvík/Grindavík því 56-55 fyrir fjórða leikhluta, mögnuð flautukarfa hjá Elvari. KR vann samt leikhlutann 24-18.
KR byrjaði fjórða leikhluta 9-0 áður en Maciej Baginski skoraði fyrir Njarðvík/Grindavík og staðan 58-64 KR í vil. Skömmu síðar fékk Stefán Karel Torfason sína fimmtu villu í liði KR og kvaddi hann völlinn með 16 stig og 10 fráköst, dýrt fyrir KR.
Síðustu fimm mínútur leiksins voru æsispennandi, Sigurður Dagur Sturluson jafnaði metin í 64-64, Baginski jafnaði aftur fyrir Njarðvík/Grindaví, 70-70 en alltaf var KR á undan til að skora.
Síðasta hálfa mínúta leiksins var svo afar viðburðarík. Jens Valgeir Óskarsson kom grænum í 73-72 á vítalínunni. KR tók innkast þar sem Sigurður Dagur vann boltann af KR-ingum og brutu röndóttir á honum þegar 24 sekúndur voru eftir. Dagur setti bæði vítin niður og staðan orðin 75-72 Njarðvík/Grindavík í vil. KR reyndi þriggja stiga skot sem Jens Valgeir Óskarsson varði en vesturbæingar heimtuðu villu en fengu ekki. Eftirleikurinn varð því auðveldur hjá Njarðvík/Grindavík og lokatölur 77-72.
Maciej Baginski var maður leiksins en hann gerði 23 stig og tók 12 fráköst í liði Njarðvíkur/Grindavíkur, næstur kom Sigurður Dagur Sturluson með 19 stig og 10 fráköst og Jens Valgeir Óskarsson gerði 17 stig, tók 8 fráköst og varði 7 skot. Hjá KR var Martin Hermannsson með 26 stig, 9 stolna bolta, 8 fráköst og 6 stoðsendingar.





