Þór Akureyri hefur samið við miðherjann Nino Johnson um að leika með liðinu í Dominos deild karla. Fyrir voru Þórsarar með Marquese Oliver sem erlendan leikmann í sínum herbúðum, en hann verður ekki meira með þeim í vetur vegna meiðsla. Johnson er 24 ára gamall, 206 cm leikmaður sem lék á síðasta ári í Finnlandi, en þar skilaði hann 13 stigum og 7 fráköstum að meðaltali í leik.
Áður en Johnson fór til Finnlands lék hann með Southeast Missouri State í bandaríska háskólaboltanum.
Að sögn Hjalta Þórs Vilhjálmssonar, þjálfara Þórs, er Johnson fjölhæfur leikmaður, sem bæði getur spilað fyrir utan, eins og við körfuna. Enn frekar segir Hjalti:
"Hann spilaði í fyrra í einu sterkasta liði Finnlands og fékk hann fín meðmæli þaðan og verður gaman að sjá hvernig hann smellur inn í Þórsliðið okkar. Nino á að vera ljúfur drengur og flottur liðsfélagi sem er ákaflega mikilvægt“
Fyrsti leikur hans verður gegn Haukum 5. janúar á nýju ári.
Tilþrif frá leikmanninum úr háskóla:




