spot_img
HomeFréttirNíels til liðs við Fjölni

Níels til liðs við Fjölni

11:17 

{mosimage}

Ekkert verður af því að Níels Páll Dungal leiki með Þór Akureyri í 1. deildinni á komandi leiktíð. Á heimasíðu Fjölnis kemur fram að Níels hafi ákveðið að ganga í raðir Grafarvogsliðsins.

 

Karfan.is greindi frá því fyrir skemmstu að Níels myndi ekki leika með KR-ingum á komandi leiktíð þar sem hann væri við nám í Lögregluskólanum í Reykjavík og hefði af þeim sökum ekki tekið þátt í undirbúningstímabilinu hjá KR.

Til stóð að Níels myndi hefja leik með Þórsurum eftir áramót á komandi leiktíð en hann er kominn á fullt með Fjölnismönnum.

 

http://www.fjolnir.is/fjolnir/forsida/

Fréttir
- Auglýsing -