spot_img
HomeFréttirNettómótinu 2021 aflýst - Næsta mót verður árið 5.-6. mars 2022

Nettómótinu 2021 aflýst – Næsta mót verður árið 5.-6. mars 2022

Nettómótinu 2021 hefur verið aflýst. Staðfesta unglingaráð Keflavíkur og Njarðvíkur þetta í fréttatilkynningu þennan morguninn. Nettómótið hefur ár hvert verið stærsta mót ársins, en því var á síðustu stundu aflýst/frestað 2020 vegna heimsfaraldurs Covid-19.

Tilkynninguna er í heild hægt að lesa hér fyrir neðan, en samkvæmt henni er það ekki talinn raunhæfur möguleiki að fresta mótinu þangað til seinna á árinu og er það því óhjákvæmilegt að því verði aflýst annað árið í röð og næst haldið 5.-6. mars 2022.

Fréttatilkynning:

Stjórnir unglingaráða körfuknattleiksdeildar Keflavíkur og Njarðvíkur hafa tekið þá ákvörðun að aflýsa Nettómótinu 2021 sem halda átti í Reykjanesbæ 6. og 7. mars næstkomandi. Á fundi deildanna var staða mála rædd og niðurstaðan er sú að ekki er talinn raunhæfur möguleiki á að fresta mótinu þar til síðar á árinu. Í ljósi mikillar óvissu sem ríkir vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar telja fulltrúar deildanna þetta því óhjákvæmileg ákvörðun.

Nettómótið er stærsta körfuknattleiksmót á Íslandi ár hvert þar sem allt að 1.300 börn hafa mætt til leiks, ásamt foreldrum og öðrum aðstandendum. Næsta Nettómót, það þrítugasta í röðinni, verður því haldið 5.-6. mars 2022. Þar mun öllu verða tjaldað til svo upplifun þátttakenda og gesta verði sem eftirminnilegust.

Með körfuboltakveðju,

KarfaN, hagsmunafélag

Fréttir
- Auglýsing -