HomeFréttirNettómótið 2011

Nettómótið 2011

 
Barna- og unglingaráð körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur í samvinnu við Nettó og Reykjanesbæ standa fyrir sínu árlega körfuboltamóti í Reykjanesbæ helgina 5. og 6. mars 2011. Þetta er jafnframt 21. mót félaganna. Mótið er fyrir drengi og stúlkur í minnibolta fædd árið 1999 og síðar.
Leikið verður á 13 völlum, 2 x 12 mínútur hver leikur.
 
Innifalið í mótsgjaldi:
• Bíóferð
– Fyrir krakka 8 til 11 ára verður myndin Yogi Bear sem er ný gamanmynd.
– Fyrir krakka 6 og 7 ára verður myndin Space Chimps 2 sem er ný teiknimynd og hæfir vel þeim aldurshópi.
• Frítt verður í Vatnaveröld ? Sundmiðstöð
• Hádegismatur á laugardag
• Kvöldmatur á laugardag
• Kvöldvaka og glaðningur
• Kvöldhressing á laugardagskvöld
• Gisting
• Morgunmatur á sunnudag
• Hádegismatur á sunnudag – Pizzuveisla frá Langbest
• Verðlaunapeningur
• Gjöf í mótslok
• Reykjaneshöllin verður opin alla helgina en þar verður boðið uppá margskonar afþreyingu til dæmis hoppukastala, körfubolta, fótbolta, frisbee-gólf og margt fleira. Um er að ræða 7.840m² leiksvæði.
• Innileikjagarðurinn Ásbrú verður opinn á laugardag frá kl. 14.30?17.30 en það er leiksvæði sem hentar sérstaklega vel fyrir yngstu kynslóðina, 2?8 ára.
 
Mótsgjald:
• Félagsgjald kr. 10.000.?
• Gjald per. þátttakanda er kr. 5.000.?
• Frítt er fyrir 1 þjálfara og 1 aðstoðarmann á hvert lið
28 síðna bæklingur mótsins verður sendur félögum fyrir mótið. Í honum eru allar upplýsingar um mótið. Einnig er hægt að nálgast bæklinginn á heimasíðu mótsins; www.nettomot.blog.is undirliðnum Tenglar, sem er vinstra megin á þeirri síðu.
 
Skráning:
Falur J. Harðarson
Sími: 896-4468
 
Athugið að síðasti skráningardagur er 25. febrúar, kl. 20:00
Fréttir
- Auglýsing -