Með þrjá sigra og þrjú töp í farteskinu hefur Neptunas komið sér fyrir í 4. sæti litháísku úrvalsdeildarinnar eftir afar öruggan leik gegn Siauliai. Yfirburðir Neptunas voru miklir en liðið innsiglaði 110:88 sigur.
Stærstan þátt í velgengni liðsins átti landsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson. Njarðvíkingurinn fór mikinn í leikstjórninni og náði glæsilegri tvennu með því að dæla út 10 stoðsendingum samhliða því að skora 18 stig.




