spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaNemanja Knezevic tekur slaginn með Vestra í efstu deild

Nemanja Knezevic tekur slaginn með Vestra í efstu deild

Miðherjinn Nemanja Knezevic hefur endurnýjað samning sinn við Vestra og tekur því slaginn með liðinu í úrvalsdeild á komandi tímabili. Þetta tilkynnti félagið rétt í þessu.

Nemanja var frábær fyrir Vestra á síðustu leiktíð og endaði með 16,5 stig og 15,8 fráköst að meðaltali í leik í 1. deildinni.

Tilkynningu Vestra má finna hér að neðan:

Nemanja þarf vart að kynna fyrir stuðningsfólki Vestra. Hann hefur verið lykilmaður í liðinu allt frá árinu 2017 þegar hann settist að á Ísafirði ásamt eiginkonu sinni. Á þessum tíma hefur hann leikið frábærlega með liðinu og iðulega verið meðal framlagahæstu leikmanna 1. deildar og oftar en ekki frákastahæstur. Það verður því sérstaklega gaman að sjá hann á stóra sviðinu í úrvalsdeildinn á komandi leiktíð.

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Vestra lýsir yfir ánægju með samninginn og hlakkar til áframhaldandi samstarfs við Nemanja á komandi tímabili. Nú er unnið hörðum höndum að því að undirbúa liðið undir þá áskorun sem sæti í úrvalsdeild er. Þessi samningur er mikilvægur liður í því ferli.

Ljósmynd: Heimasíða Vestra – Anna Ingimars.

Fréttir
- Auglýsing -