HomeFréttirNálægt tvennunni í öruggum sigri Neptunas

Nálægt tvennunni í öruggum sigri Neptunas

Elvar Már Friðriksson gaf 9 stoðsendingar og skoraði níu stig á aðeins 23 mínútum þegar lið hans, Neptunas, vann öruggan sigur í litháísku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag.

Leiknum lauk með 27 stiga mun, 89:62, gegn Nevezis sem hefur enn ekki unnið leik á tímabilinu. Með sigrinum er Neptunas komið með tvo sigra eftir fyrstu fjórar umferðirnar.

Fréttir
- Auglýsing -