HomeFréttirNær KR að hefna fyrir ósigurinn í bikarnum á Sauðárkróki?

Nær KR að hefna fyrir ósigurinn í bikarnum á Sauðárkróki?

Tuttugustu umferð Dominos deildar karla lýkur í kvöld með þremur leikjum. Ljóst er að mikið er undir enfar einungis tveir leikir eftir í deildinni eftir þessa umferð. 

 

Í Þorlákshöfn eru Hattarmenn í heimsókn. Höttur er fallið úr deildinni en Þór á enn smá séns á að stela úrslitakeppnissæti en þá þarf ansi margt að ganga upp. Á Akureyri mætast liðin í 10. og 11. sæti deildarinnar. Valsmenn geta tryggt sæti sitt í deildinni með sigri en það þýðir að Þór Akureyri er fallið í 1. deild. Það er því risavaxinn leikur einnig á Akureyri.

 

Stórleikur umferðarinnar er hinsvegar á Sauðárkróki þar sem liðin sem mættust í úrslitum Maltbikarsins mætast aftur. Tindastóll vann úrslitaleikinn en KR vann fyrri leik liðanna í deildinni ansi sannfærandi. 

 

Einnig fara fram tveir leikir í 1. deild karla þar sem liðin eiga enn eftir að festa sæti sitt fyrir úrslitakeppnina. Nánar verður fjallað um alla leiki dagsins á Karfan.is í kvöld. 

 

 

Leikir dagsins

Dominos deild karla:

Þór Þ – Höttur – kl. 18:30
Þór Akureyri – Valur – kl. 19:15 (Í beinni á Thorsport.is)
Tindastóll – KR – kl. 20:00 (í beinni á Stöð 2 Sport)

 

1. deild karla:

ÍA – Breiðablik – kl. 19:15 (Í beinni á ÍA TV)
Hamar – FSu – kl. 19:15 (Í beinni á Hamar tíví)

 

Fréttir
- Auglýsing -