Átta leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Baráttan um sæti í úrslitakeppninni á vesturströndinni virðist engan endi ætla að taka. Nú eiga flest liðin aðeins um 7 leiki af 82 eftir, en þrátt fyrir það eru aðeins 2 lið örugg með sæti sitt í úrslitakeppninni.
Í þessari baráttu unnu bæði LA Clippers og Minnesota Timberwolves mikilvæga sigra í nótt. Timberwolves heima í Target Center gegn Atlanta Hawks og Clippers gegn Phoenix Suns á útivelli. Þá fóru Utah Jazz illa að ráði sínu er þeir töpuðu fyrir meiðslahrjáðum hóp Boston Celtics heima í Salt Lake City, en hér fyrir neðan má sjá sigurkörfu leiksins.
Cleveland Cavaliers 118 – 105 Charlotte Hornets
Brooklyn Nets 111 – 104 Orlando Magic
New York Knicks 101 – 118 Philadelphia 76ers
Portland Trail Blazers 103 – 108 Memphis Grizzlies
Atlanta Hawks 114 – 126 Minnesota Timberwolves
Boston Celtics 97 – 94 Utah Jazz
LA Clippers 111 – 99 Phoenix Suns
Dallas Mavericks 93 – 103 Los Angeles Lakers



