HomeFréttirHaukur Pálsson er stór líka

Haukur Pálsson er stór líka

Íslenska karlalandsliðið landaði afar mikilvægum 113–101 sigri gegn Bosníu og Hersegóvínu í Laugardalshöll í kvöld í undankeppni HM 2027. Sigurinn heldur vonum Íslands um sæti á lokamótinu á lífi, en liðið er nú með fjóra sigra og fimm töp í J-riðli fyrir útileikinn gegn Tyrklandi á sunnudag.  

Íslenska liðið náði frumkvæðinu snemma leiks, leiddi 32–23 eftir fyrsta leikhluta og stóðst áhlaup gestanna í öðrum fjórðungi. Þrátt fyrir að missa Tryggva Snæ Hlinason af velli með fimmtu villuna í upphafi fjórða leikhluta stigu aðrir upp og sigldu tólf stiga sigri örugglega í höfn.  

Rætt var við Viðar Örn Hafsteinsson, aðstoðarþjálfara Íslands, strax að leik loknum í Laugardalshöll.

Viðtalið við Viðar Örn má horfa á í spilaranum hér fyrir neðan.

Fréttir
- Auglýsing -