Körfuknattleikssamband Íslands og Altís hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning þeirra efna að Molten verði leikbolti Domino´s deildanna, 1. deildar sem og allra heimaleikja landsliða Íslands. Undir þetta rituðu þeir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ og Theódór Sigurðsson, eigandi Altís (umboðsaðili Molten á Íslandi) við hlé í leik Íslands og Lúxemborg á Smáþjóðaleikunum fyrr í kvöld.
Mynd frá undirritun samninga / Bára




