Sverrir Þór Sverrisson er aðstoðarþjálfari U20 ára landsliðs Íslands en í gærkvöldi máttu okkar menn sætta sig við naumt tap gegn heimamönnum í Bosníu í fyrsta leik sínum á EM U20. Karfan.is náði stuttu tali af Sverri Þór eftir leikinn í gærkvöldi.
,,Við byrjuðum vel í seinni hálfleik, náðum 11 stiga forskoti en vorum svo í vandræðum í sókninni þar sem við klikkuðum mikið nálægt körfunni og Bosníumenn komust inn í leikinn. Við misstum lykilmenn af velli með fimm villur og Bosnía gekk á lagið og náði að klára leikinn. Nú er bara að gera sig klára í leikinn gegn Ísraelum.
Annar leikur Íslands í keppninni er gegn Ísraelum í dag kl. 15.30 að íslenskum tíma.




