HomeBónus deildinBónus deild kvennaMinningarmót Óla Jó fer fram í HS-Orku höllinni

Minningarmót Óla Jó fer fram í HS-Orku höllinni

Grindavík stendur fyrir Minningarmóti Óla Jó í meistaraflokki kvenna dagana 16. til 19. september til heiðurs Ólafi Jóhannessyni sem féll frá á síðasta ári.

Óli Jó átti stóran sess í sögu körfuknattleiksins í Grindavík og er mótið haldið til að halda minningu hans á lofti og heiðra það starf sem hann vann fyrir félagið og íþróttina.

Auk heimakvenna í Grindavík taka lið Keflavíkur og Stjörnunnar þátt í mótinu. Keppnin hófst miðvikudaginn 16. september þegar Grindavík og Keflavík mættust klukkan 19:00. Mótið heldur áfram föstudaginn 18. september með leik Keflavíkur og Stjörnunnar klukkan 19:00 og lýkur svo á laugardeginum 19. september þegar Stjarnan og Grindavík eigast við klukkan 14:00.

Allir leikirnir fara fram í HS-Orku höllinni í Grindavík. Aðgangseyrir er 1.000 krónur á leik og hvetur körfuknattleiksdeildin bæði Grindvíkinga og körfuboltaáhugafólk víðar að til að mæta á pallana og styðja stelpurnar.

Fréttir
- Auglýsing -