spot_img
HomeFréttirMilwaukee Bucks neita að koma úr búningsklefa sínum

Milwaukee Bucks neita að koma úr búningsklefa sínum

Fimmti leikur einvígis Milwauke Bucks og Orlando Magic í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA deildarinnar átti að byrja nú kl. 20:00 á íslenskum tíma. Leikurinn er þó ekki farinn af stað því leikmenn Bucks hafa ekki skilað sér úr búningsklefanum á völlinn.

Ekki er vitað hvort að leikurinn mun fara fram, en fjarvera Bucks er að öllum líkindum mótmæli gegn yfirvöldum í Bandríkjunum og kerfislægri mismunun, kveikjan að því atvik sem átti sér stað síðustu helgi þegar að lögreglan í Kenosha, Wisconsin skaut óvopnaðan mann í sjö skipti í bakið, en staðurinn er aðeins tæpa 60 kílómetra frá heimavelli þeirra í Milwaukee.

Liðsmenn Orlando Magic voru mættir til leiks, en eftir að hafa beðið í 15 mínútur héldu þeir einnig til búningsherbergja sinna.

Uppfært:

Milwaukee Bucks munu ekki koma úr búningsklefa sínum til þess að leika fimmta leik einvígis síns gegn Orlando Magic.

Óvíst er hvernig NBA deildin mun taka á málinu, en með sigri í kvöld hefðu Bucks slegið Magic út og komist í næstu umferð, þar sem að lið Miami Heat bíða þeirra.

Þá er einnig óljóst hvort að leikir Houston Rocket og Oklahoma City Thunder, síðan Los Angeles Lakers og Portland Trail Blazers muni fara fram seinna í kvöld og í nótt.

Fréttir
- Auglýsing -