spot_img
HomeFréttirMillirðilarnir klárir í Slóveníu

Millirðilarnir klárir í Slóveníu

Nú er ljóst hvaða 12 lið eru komnin áfram í milliriðili á EM í Slóveníu. Mikil samkeppni var í lokaumferðinni og ekki ljóst fyrr en á síðustu stundu hvaða lið komust áfram. Meðal liða sem komust ekki áfram voru lið sem eru íslenska landsliðinu kunn, Ísrael og Svartfjallaland, sem bæði léku með okkur í A-riðli undankeppninnar í fyrrasumar. Makedónía, sem hafnaði í 4. sæti 2011 í Litháen, komst ekki áfram og sömu sögu er að segja af Rússum (3. sæti 2011) og Tyrklandi.
 
Úr A og B riðlum fóru eftirfarandi lið áfram:
 
Frakkland · 4 stig
Serbía · 4 stig
Litháen · 3 stig
Úkraína · 3 stig
Lettland · 2 stig
Belgía · 2 stig
 
Úr C og D riðlum fóru eftirfarandi 6 lið áfram:
 
Ítalía · 4 stig
Spánn · 3 stig
Slóvenía · 3 stig
Finnland · 3 stig
Króatía · 3 stig
Grikkland · 2 stig
 
Liðin leika 3 leiki hvert (gegn þeim liðum sem þau voru ekki með í riðli og 4 efstu úr hvorum riðli fara í 8-liða úrslit þar sem leikið er með útsláttar fyrirkomulagi.
 
Keppni í milliriðlum hefjast á morgun miðvikudag en 8-liða úrslitin hefjast á miðvikudaginn 18. september eftir viku og úrslitin eru á sunnudaginn 22. september.
  
Frétt af www.kki.is 
 
Mynd/ Svíinn Jeffrey Taylor er stigahæsti leikmaður EuroBasket í riðlakeppninni með 21,2 stig að meðaltali í leik. Taylor hefur sungið sitt síðasta á mótinu því Svíar eru úr leik.
Fréttir
- Auglýsing -