spot_img
HomeFréttirMiðasala hafin á leik Íslands gegn Úkraínu – Takmarkað magn miða í...

Miðasala hafin á leik Íslands gegn Úkraínu – Takmarkað magn miða í boði

Ísland á heimaleik í ágúst 2022 gegn Úkraínu laugardaginn 27. ágúst í annari umferð WorldCup 2023 Qualifiers keppni FIBA. Leikið verður í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði. Leikurinn hefst kl. 20:00 og verður sýndur beint á RÚV2. Fyrri leikur liðsins í þessum ágúst-glugga verður gegn Spáni og fer hann fram í Pamplona á Spáni 24. ágúst og verður hann einnig sýndur beint á RÚV2.

Ísland hefur líklega aldrei átt betri möguleika á að komast áfram í lokakeppni heimsmeistaramóts, þar sem liðið er sem stendur í 2. sæti L riðils, en úr honum fara 3 lið af 6 á lokamótið. Leikir Íslands í þessum lokariðil undankeppninnar þó nokkrir og mikilvægt fyrir liðið að ná í úrslit í einhverjum þeirra ætli þeir sér að komast á lokamót HM 2023.

Miðasala er hafin á Stubb, en tekið er fram að takmarkað magn miða verður í boði á leikinn. Miðaverð fyrir fullorðna er 2500 kr. á meðan að 15 ára og yngri þurfa að greiða 1000 kr. fyrir miða. KKÍ-aðgöngukort gilda ekki á leikinn.

Allar nánari upplýsingar er að finna hér

Hérna er heimasíða undankeppninnar

Hér fyrir neðan má sjá leiki Íslands í annarri umferð undankeppninnar:

Ágúst 2022:

SPÁNN-ÍSLAND24. ágúst (úti)
ÍSLAND-ÚKRAÍNA27. ágúst (heima)

Nóvember 2022:

ÍSLAND-GEORGÍA11. nóvember (heima)
ÚKRAÍNA-ÍSLAND14. nóvember (úti)

Febrúar 2023:

ÍSLAND-SPÁNN23. febrúar (heima)
GEORGÍA-ÍSLAND26. febrúar (úti)
Fréttir
- Auglýsing -