spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Miðasala hafin á gífurlega mikilvægan fyrsta leik Íslands í undankeppni EuroBasket 2025

Miðasala hafin á gífurlega mikilvægan fyrsta leik Íslands í undankeppni EuroBasket 2025

Miðasala er hafin á fyrsta leik Íslands í undankeppni EuroBasket 2025, en þann 22. febrúar mun liðið taka á móti Ungverjalandi í Laugardalshöll.

Sæti á Evrópulista FIBA

Ítalía 8. sæti

Tyrkland 15. sæti

Ungverjaland 21. sæti

Ísland 24. sæti

Ísland er í fjögurra liða riðil í undankeppninni, þar sem að efstu þrjú liðin fara áfram á lokamótið. Ásamt Íslandi og Ungverjalandi eru í riðlinum sterkar þjóðir Ítalíu og Tyrklands. Hvernig sem leikir gegn þeim þjóðum fara er ljóst að Ísland þarf líklega að ná í góð úrslit gegn Ungverjalandi ætli þeir sér að komast áfram, en leikið er heima og heiman gegn öllum liðunum.

Hérna er heimasíða mótsins

Leikir undankeppni EuroBasket 2025

Ungverjaland (heima) – 22.02.24

Tyrkland (úti) – 25.02.24

Ítalía (heima) – 22.11.24

Ítalía (úti) – 25.11.24

Ungverjaland (úti) – 20.02.25

Tyrkland (heima) – 23.02.25

Líkt og tekið var fram er miðasala hafin á þennan fyrsta gífurlega mikilvæga leik Íslands og fer miðasala fram í gegnum smáforritið Stubb.

Fréttir
- Auglýsing -