spot_img
HomeFréttirMiami vann ekki leik

Miami vann ekki leik

10:36

{mosimage}

Shaquille O'Neal var stigahæstur Miami manna 

Miami Heat tapaði í nótt 104-87 fyrir San Antonio á undirbúningstímabilinu í NBA og tapaði þar með öllum sjö leikjum sínum í undirbúningnum. Þetta er lélegasti árangur í sögu félagsins.

Manu Ginobili skoraði 22 stig fyrir San Antonio í nótt og Michael Finley skoraði 14 stig. Shaquille O´Neal skoraði 17 stig fyrir Miami – öll í fyrri hálfleik.

Undirbúningstímabilið er hinsvegar ekki endilega fullkominn mælikvarði á gengi liða í deildarkeppninni, því Cleveland vann t.d. aðeins einn af sjö leikjum sínum á undirbúningstímabilinu í fyrra – en fór alla leið í úrslit.

Fjölmargir leikir voru á dagskrá í nótt og voru úrslitin sem hér segir:

New Jersey 82 – Boston 71
Minnesota 95 – Indiana 106
Dallas 96 – Chicago 88
Houston 107 – Memphis 109 (tvíframlengt)
Denver 114 – Milwaukee 102
LA Lakers 81 – Utah 102
Seattle 122 – Golden State 126 (framlengt)

www.visir.is 

Mynd: Miami Heat

Fréttir
- Auglýsing -