spot_img
HomeFréttir"Mér fannst við virkilega flottir í dag"

“Mér fannst við virkilega flottir í dag”

Íslandsmeistarar Vals lögðu Þór í Þorlákshöfn í kvöld í fjórða leik undanúrslitaeinvígis liðanna, 94-103. Fyrstu tvo leiki einvígis liðanna vann Þór áður en Valur minnkaði muninn með öruggum sigri í Origo Höllinni nú fyrir helgina og jöfnuðu svo einvígið með sigri í kvöld. Það mun því verða oddaleikur sem sker úr um hvort liðið fer í úrslitaeinvígið gegn Tindastól, en hann fer fram komandi þriðjudag 2. maí.

Tölfræði leiks

Karfan spjallaði við Kára Jónsson leikmann Vals eftir leik í Þorlákshöfn.

Fréttir
- Auglýsing -