Carmelo Anthony lék í nótt sinn fyrsta leik fyrir New York Knicks í NBA deildinni en fyrr í þessari viku fór kappinn frá Denver til Stóra-Eplisins í níu manna skiptum þar sem einhverjir aurar voru líka með í för ásamt valréttum í nýliðavalinu. Knicks tóku á móti Milwaukee í Madison Square Garden og höfðu nauman sigur 114-108.
Anthony gerði 27 stig í leiknum og tók 10 fráköst en Chaunsey Billups sem kom með honum til Knicks frá Denver var einnig í byrjunarliði Knicks og smellti niður 21 stigi, gaf 8 stoðsendingar og tók 6 fráköst. Hjá Bucks var John Salmons með 27 stig og 7 stoðsendingar.
Annars fóru 12 leikir fram í NBA deildinni í nótt og voru úrslitin eftirfarandi:
Cleveland 119-124 Houston
Indiana 102-101 Detroit
Orlando 105-111 Sacramento
Philadelphia 117-104 Washington
Toronto 118-113 Chicago
San Antonio 109-105 Oklahoma
Minnesota 95-104 Minnesota
Dallas 118-99 Utah
Phoenix 105-97 Atlanta
New Orleans 98-87 LA Clippers
Portland 101-106 LA Lakers
Mynd/ Melo mættur í Madison Square Garden.





