Meistarakeppni KKÍ 2009 fer fram í DHL höllinni í dag. Þá mætast Íslandsmeistarar og Bikarmeistarar frá síðasta keppnistímabilinu í árlegum góðgerðarleik. Frá árinu 1995 hefur þessi leikur verið góðgerðarleikur og rennur allur aðgangseyrir til ákveðins góðgerðarfélags. Allir sem að leikjunum koma gefa sína vinnu til styrktar málefninu hverju sinni.
Í ár verður það Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna sem fær allt það fé sem safnast í kringum leikina.
Dagskráin í DHL höllinni verður með þessum hætti:
16:30 Haukar – KR
Íslandsmeistarar Hauka leika gegn Bikarmeistara KR í kvenna.
19:15 KR – Stjarnan
Íslandsmeistarar KR taka á móti Bikarmeisturum Stjörnunnar en þessi lið léku einmitt til úrslita í Subwaybikar karla sl. tímabil.
Troðslur og þriggja stiga körfur safna fé fyrir Neistann:
Iceland Express og Subway styrkja Neistann sérstaklega með skemmtilegri uppákomu.
Iceland Express og Subway hafa ákveðið að setja ákveðna upphæð undir fyrir hverja þriggja stiga körfu og troðslu í leikjunum.
Iceland Express greiðir fyrir slíkar körfur hjá liðunum sem eru Íslandsmeistarar í Iceland Express deildunum og Subway gerir slíkt hið sama fyrir liðin sem eru Subwaybikarmeistarar.
Fyrir hverja þriggja stiga körfu er greitt kr. 2500 og troðslu kr. 5000.
Miðaverð: 1000 fyrir fullorðna, 500 fyrir 12-16 ára. Frítt fyrir börn.
Engin fríkort gilda á þessa leiki.