HomeNeðri deildir2. deild karlaMeistaraflokkur Aftureldingar klár í slaginn í 2. deild karla

Meistaraflokkur Aftureldingar klár í slaginn í 2. deild karla

Afturelding hefur kynnt leikmannahóp sinn fyrir komandi tímabil í 2. deild karla, en liðið hefur leik á morgun gegn Fylki í Árbænum.

Hópurinn er blanda af reynslumiklum leikmönnum og efnilegum heimamönnum sem hafa alist upp hjá félaginu. Fyrirliði liðsins er Ólafur Snær Eyjólfsson og honum til halds og trausts sem varafyrirliði er Alexander Jón Finnsson, körfuboltamaður Aftureldingar árið 2025.  

Mosfellingar fá mikinn liðsstyrk í Senegalbúanum El Hadji Malick Khouma, 207 sentímetra framherja með reynslu frá Spáni, sem og Jóni Gunnari Shiranssyni sem kemur frá Vestra. Þeir ganga til liðs við Magna Fannar Jónsson og öflugan kjarna ungra uppalinna leikmanna úr 2009- og 2010-árgöngum félagsins. Sævaldur Bjarnason heldur áfram sem aðalþjálfari liðsins með Eirík Karlsson sér til aðstoðar.

Fréttir
- Auglýsing -