Maryland braut á bak aftur tveggja leikja taphrinu um helgina þegar liðið fékk North Carolina State í heimsókn í bandaríska háskólaboltanum. Lokatölur leiksins voru 87-80 Maryland í vil þar sem Haukur Helgi Pálsson fékk að spreyta sig í fjórar mínútur.
Haukur komst ekki á blað að þessu sinni í stigaskorinu þar sem hann tók ekkert skot en á þessum fjórum mínútum nældi hann sér í tvær villur og tapaði einum bolta. Með sigrinum er Maryland komið upp í 6. sæti ACC riðilsins og nú aftur á jafnsléttu í sigurhlutfallinu, 6 sigrar og 6 tapleikir.
Þá máttu Helena Sverrisdóttir og liðsfélagar í TCU sætta sig við ósigur um helgina gegn toppliði BYU, 70-60. Leikurinn fór fram á heimavelli BYU sem eru á toppnum í Mountain West riðlinum. Helena gerði 9 stig á 34 mínútum í leiknum en hún var einnig með 5 stoðsendingar, 4 fráköst og 2 varin skot. TCU er í 2. sæti riðilsins með 10 sigra og 3 tapleiki.
María Ben Erlingsdóttir og UTPA náðu í góðan sigur um helgina þegar NJIT skólinn kom í heimsókn. Lokatölur voru 72-53 UTPA í vil þar sem María var í byrjunarliðinu og lék í 21 mínútu. Hún gerði 2 stig í leiknum og tók 2 fráköst. Eftir leik helgarinnar er UTPA í 5. sæti í Great West Conference riðlinum með 3 sigra og 7 tapleiki.
Árni Ragnarsson fékk að spreyta sig í 10 mínútur með Huntsville Chargers um helgina í 2. deild háskólaboltans. Chargers mættu þá Oakland City og lönduðu öruggum sigri 88-60. Árni skoraði 2 stig í leiknum, stal 2 boltum, tók 1 frákast og gaf 1 stoðsendingu. Aðeins tveir leikir eru eftir á dagskránni hjá Chargers en þeir fara fram 24. og 26. febrúar.
Mynd/ María Ben Erlingsdóttir og UTPA höfðu sigur í bandaríska háskólaboltanum um helgina.





