Martin Hermannsson átti líflegar rispur með KR í kvöld þegar röndóttir lágu gegn Fjölni í Dalhúsum. Martin skapaði oft mikla hættu en mátti þola tap með gestunum í kvöld. Hann gerði 21 stig fyrir KR í leiknum, tók 6 fráköst og gaf 4 stoðsendingar.
,,Ég veit ekki hvað gerði útslagið en mér fannst við bara slakir allan tímann. Við komum flatir út og héldum bara að við værum betra liðið sem við vorum alls ekki. Fjölnir spilaði af hörku hérna í dag og við bara náðum ekki að sýna okkar bestu hliðar," sagði Martin svekktur í leikslok.
,,Við lögðum upp með að dæla boltanum inn og finna Finn enda vissum við að við værum með stærri leikmenn. Það var að ganga vel til að byrja með en svo bara urðum við ragir."
Mynd/ Björn Ingvarsson – Martin reyndist Fjölni erfiður í kvöld.





