spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaMartin með fjórtán stig í sigri Alba

Martin með fjórtán stig í sigri Alba

Önnur umferð þýsku Bundesligunnar fór af stað í gær með leik Alba Berlín og Hakro Merlins Crailsheim.

Martin Hermannsson var í byrjunarliði Alba líkt og í öllum leikjum tímabilsins til þessa. Berlín tók snemma forystuna og lét hana aldrei af hendi. Segja má að Alba hafi unnið ansi sannfærandi sigur að lokum, 115-76.

Martin var öflugur í leiknum og endaði með 14 stig auk þess sem hann hitti mjög vel eða fjórum af sex skotum sínum.

Alba Berlín ferðast til Frakklands í vikunni og mæta liði Limoges í EuroCup þann 17. október næstkomandi.

Fréttir
- Auglýsing -