spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaMartin með átta stig í eins stigs sigri gegn Joventut Badalona

Martin með átta stig í eins stigs sigri gegn Joventut Badalona

Martin Hermannsson og Valencia lögðu í kvöld Joventut Badalona í ACB deildinni á Spáni með minnsta mun mögulegum, 71-70.

Eftir leikinn er Valencia í 8. sæti deildarinnar með fjóra sigra og fjögur töp það sem af er tímabili.

Á rúmum 26 mínútum spiluðum skilaði Martin 8 stigum, frákasti og 3 stoðsendingum.

Næsti leikur Valencia í deildinni er þann 14. nóvember gegn stórliði Barcelona.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -