spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaMartin duglegur að mata liðsfélagana í Feneyjum

Martin duglegur að mata liðsfélagana í Feneyjum

Martin Hermannsson og Valencia lögðu Umana Reyer Venice í kvöld í EuroCup, 67-81.

Eftir leikinn er Valencia í 3. sæti B riðils keppninnar með fjóra sigra og tvö töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 30 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 5 stigum, frákasti og 6 stoðsendingum, en hann var stoðsendingahæsti leikmaður vallarins í kvöld.

Næsti leikur Martins og Valencia í keppninni er þann 15. desember gegn Bursaspor.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -