spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaMartin duglegur að mata liðsfélagana gegn Real Betis

Martin duglegur að mata liðsfélagana gegn Real Betis

Martin Hermannsson og Valencia máttu þola tap í kvöld fyrir Real Betis í ACB deildinni á Spáni, 75-68.

Eftir leikinn eru Valencia í 5. sæti deildarinnar með 64 stig.

Á rúmum 23 mínútum spiluðum skilaði Martin 2 stigum, 2 fráköstum, 8 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.

Næsti leikur Martins og Valencia í deildinni er þann 17. apríl gegn Baskonia.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -