Leikmaður Íslands, Martin Hermannsson, var annar í framlagi að meðaltali í leik á æfingamótinu sem var að ljúka í Kazan í Rússlandi. Auk Íslands léku þar Rússland, Þýskaland og Ungverjaland. Var það heimamaðurinn og fyrrum NBA meistarinn, leikmaður Brooklyn Nets, Timofey Mozgov sem skilaði hæstu framlagi allra á mótinu.
Listann tíu efstu má sjá hér fyrir neðan:
#1: Timofey Mozgov – Rússland – 23,3
#2: Martin Hermannsson – Ísland – 17,3
#3: Nikita Kurbanov – Rússland – 16,3
#4: David Vojvoda – Ungverjaland – 16,0
#5: Danilo Barthel – Þýskaland – 15,5
#6: Haukur Helgi Palsson – Ísland – 15,0
#7: Zoltan Perl – Ungverjaland – 12,0
#8: Mikhail Kulagin – Rússland – 12,0
#9: Andrey Zubkov – Rússland – 11,0
#10: Robin Benzing – Þýskaland – 10,5
Hérna er hægt að skoða alla tölfræði af mótinu
Hér fyrir neðan má sjá Martin taka við verðlaunum úr höndum fyrrum NBA leikmannsins Andrei Kirilenko eftir síðasta leik liðsins á mótinu:
@hermannsson15 mvp #korfubolti pic.twitter.com/Df6gZh7D1M
— KKÍ (@kkikarfa) August 13, 2017