Karfan.is hefur birt kraftraðanir með reglulegu millibili í vetur. Þar er ekki aðeins tekin til staða liðanna í deildinni, heldur einnig breytingar á leikmannahópum og það gengi, eða sú sveifla sem liðið er í á hverri stundu.
Nú skal 1. deild karla skoðuð í hinsta sinn fyrir úrslitakeppnina. Við lofum að þetta verður leiðinlegasta spá tímabilsins að því leyti að við höldum ekki að nokkur skapaður hlutur breytist m.t.t. röðunar í sætum deildarinnar. Seinasta röðun var vísvitandi algjört gisk og hellingur af innihaldslausum staðhæfingum voru þar innanborðs. Hún stóðst engan veginn og var að eilitlu leyti til þessi gerð. Nú þorum við ekki annað en að hafa þetta röðunina algerlega óbreytta frá raunverulegu stöðunni í deildinni. Við ætlum að verja meiri tíma í að ímynda okkur hvernig mögulegar rimmur í úrslitakeppninni verða og taka saman gengi liðanna á tímabilinu.
Úrslitakeppnin í 1. deild karla verður með sama móti og undanfarin ár; liðið í efsta sætinu fær beina flugferð upp í úrvalsdeild karla á meðan að liðin í öðru til fimmta sæti fara inn í 4-liða úrslit 1. deildar (sem verða gróflega 15.-30. mars). Þau lið sem komast áfram úr undanúrslitunum fara í úrslitaviðureign (sem verður 5.-18. apríl).
Örvarnar á þessum lista merkja færslu liða frá seinustu spá.
#1: Skallagrímur


Skallagrímur hefur á tímabilinu sýnt að þetta er öflugur hópur sem á skilið að vera á toppi 1. deildar eða í neðri sætum úrvalsdeildar karla. Eina sem mætti lasta þeim fyrir er að þeir hafa verið dálítið sveiflukenndir í stigaskori í sigurleikjum vs. tapleikjum, en þeir skora 102,8 stig að meðaltali í sigrum en 87,7 að meðaltali í töpum, sveifla upp á 15,1 stig. Þeir þurfa aðeins að vinna einn leik í viðbót til að tryggja sig beint upp í efstu deild og við erum eiginlega alveg vissir um að það muni gerast, jafnvel þó að öll liðin þrjú sem þeir eiga eftir að mæta séu góð. Eitt þeirra mun líklega tapa fyrir Borgnesingum og þeir fara þá beint upp. Sjáumst í Domino’s deildinni að ári, Skallar!
Breyting: Upp um tvö sæti
Seinustu 3 leikirnir:
01-03-2018 gegn Snæfell
05-03-2018 @ Breiðablik
09-03-2018 gegn Vestri
#2: Hamar


Hamarsmenn hafa sýnt að þeir eru mikið betri en flestir töldu í upphafi tímabilsins. Þeir eru mjög sigursælir í naumum leikjum en þeir hafa unnið 7 af 8 leikjum sínum sem hafa ráðist með 5 stigum eða minna. Mjög líklega góður eiginleiki í úrslitakeppninni. Þeir eru með innbyrðis baráttuna á bæði Vestra og Breiðablik en þeir gætu lent í vandræðum með Snæfell í undanúrslitunum. Hamar hefur tapað 2 leikjum af þremur gegn Snæfell en þrír leikir eru reyndar ekkert endilega nógu gott úrtak til að draga einhverja ályktun af. Í úrslitakeppninni gegn fullskipuðu liði Ísfirðinga gætu leikirnir milli Hamars og Vestra orðið nokkuð spennandi og erfitt að spá fyrir úrslitunum. Hamar er nokkuð tryggt í 2. sætið en framhaldið í úrslitakeppninni verður að koma í ljós. Ætli þeir koðni í úrslitaoddaleiknum eins og í fyrra?
Breyting: Upp um tvö sæti
Seinustu 3 leikirnir:
02-03-2018 gegn FSu
05-03-2018 @ Fjölnir
09-03-2018 gegn Gnúpverjar
#3: Vestri


Ótímabær og óheppileg meiðsl næst framlagshæsta leikmanns deildarinnar, Nemanja Knezevic, reyndust mjög erfið fyrir Vestra. Fyrir meiðsl hans voru þeir 14-4 í sigrum og töpum (77,8% sigurhlutfall) en eftir þau (og að meðtöldum leiknum þar sem hann meiddist) hafa þeir tapað þremur af fjórum leikjum (25% sigurhlutfall). Þeir eru sem betur fer með innbyrðis baráttuna á Breiðablik og Snæfell sem eru að elta þá í stólakeppni úrslitakeppninnar. Það gæti verið von á Nemanja aftur fyrir úrslitakeppnina þannig að Vestri koma mögulega fílefldir inn í úrslitin eftir slakan endasprett í deildarkeppninni. Það kemur þeim eiginlega betur að falla um eitt sæti og vera á útivelli vegna tveggja mikilvægra leikmanna sinna sem eru búsettir á Suðvesturlandinu, þeim Hinrik Guðbjartssyni og Ágústi Angantýssyni. En þeim á Ísafirði finnst ábyggilega ekki leiðinlegt að fá nokkra heimaleiki gegn Breiðablik í undanúrslitum.
Breyting: Niður um eitt sæti
Seinustu 2 leikirnir:
04-03-2018 @ ÍA
09-03-2018 @ Skallagrímur
#4: Breiðablik


Stjórn Breiðabliks lét Lárus Jónsson þjálfara fjúka fyrir skemmstu og liðið verður að öllum líkindum án alvöru þjálfara það sem eftir er af tímabilinu. Chris Woods, nýr leikmaður Blika, hleypur í skarðið þar til tímabilið er búið. Liðið gæti gert tvennt; annars vegar að sýna að það hafi aldrei þurft á Lalla að halda og að þeir séu nógu góðir til að loka tímabilinu með þremur sigrum í röð (og jafnvel fara beint upp), og hins vegar að þeir verði stefnulausir með spilandi þjálfara og muni rétt svo ná að vinna ÍA og tapa fyrir Skallagrím og Snæfell. Við höldum því miður að þeir muni ekki ná að bíta nægilega frá sér undir lokin og sitji sem fastast í fjórða sætinu, líklegast jafnir að stigum með Vestra (og tapa því innbyrðis baráttunni þar). Í undanúrslitum gegn fullskipuðu liði Vestra sem hefur heimavallarréttinn verður erfitt að vinna, en hver veit? Kannski hefur Woods verið að bíða eftir að fá að blómstra í þjálfarahlutverkinu. Líklegast ekki, samt.
Breyting: Niður um þrjú sæti
Seinustu 3 leikirnir:
02-03-2018 @ ÍA
05-03-2018 gegn Skallagrímur
09-03-2018 @ Snæfell
#5: Snæfell


Snæfell hefur lítin séns á að koma sér ofar í deildinni áður en yfir lýkur en þeir eru heldur ekki í neinni hættu á að missa af úrslitakeppninni enda eru Fjölnismenn þremur sigrum á eftir þeim með aðeins tvö leiki eftir. Snæfell munu því miður ekki verða annað en fljót afgreidd hraðahindrun á leið til úrslitarimmu 1. deildarinnar. Hólmarar gætu samt alveg komið á óvart og unnið heimaleikina sína gegn Hamar. Þeir fara þó ekki lengra en það.
Breyting: Engin
Seinustu 3 leikirnir:
01-03-2018 @ Skallagrímur
04-03-2018 @ Gnúpverjar
09-03-2018 gegn Breiðablik
#6: Fjölnir

Ungt lið Fjölnismanna (eða öllu heldur Fjölnisdrengja) áttu áhugavert tímabil þar sem þeir lentu oft og mörgum sinnum í naumum leikjum, 9 slíkum, en gátu aðeins unnið 3 þeirra. Falur Harðarson, þjálfari þeirra, talaði iðulega um ungan aldur leikmannahópsins og reynsluleysi þeirra sem skýrir gengið í ár. Á næsta ári gætu þeir átt betra mót með aðeins meiri reynslu og okkur hlakkar til að sjá þetta lið aftur láta til sín taka í 1. deildinni. Í bili eru þeir á leið í frí eftir seinustu tvo leikina og geta hafið undirbúninginn fyrir næsta tímabil.
Breyting: Upp um eitt sæti
Seinustu 2 leikirnir:
01-03-2018 @ Gnúpverjar
05-03-2018 gegn Hamar
#7: Gnúpverjar


Liðið sem skaust upp í gegnum 3. og svo 2. deild karla fann að lokum þakið sitt. Þeir bættu við sig betri leikmönnum eftir því sem að leið á tímabilið en það var of seint í rassinn gripið. Samt sem áður, Gnúpverjum var spáð botnsætinu í fyrstu spá tímabilsins og enda í því sjöunda. Ágætur árangur og þeir koma vonandi tvíefldir inn í 1. deildina næsta haust. Njótið sumarfrísins, strákar.
Breyting: Upp um eitt sæti
Seinustu 3 leikirnir:
01-03-2018 gegn Fjölnir
04-03-2018 gegn Snæfell
09-03-2018 @ Hamar
#8: FSu


Selfyssingar voru vonbrigði fyrir jól með aðeins einn sigur en náðu að bæta sig eftir áramót og hafa unnið meirihluta leikja sinna á seinni hluta tímabilsins (5 sigrar í 9 leikjum). Tímabilið þeirra einkenndist af losarabrag, þjálfaraskiptum og andleysi sumra leikmanna innan þeirra raða. Þeir falla ekki í ár en verða að fara í naflaskoðun þegar þeir komast í sumarfrí eftir seinustu tvo leiki tímabilsins. Við vonum að þeir verði meira sannfærandi á næsta ári.
Breyting: Niður um tvö sæti
Seinustu 2 leikirnir:
02-03-2018 @ Hamar
09-03-2018 @ ÍA
#9: ÍA


Það var lítið að frétta af Skagamönnum mest allt tímabilið og þeir munu ljúka keppni á botni deildarinnar án sigurs. Við vonum þó að þeir geti náð sér í sigur í einum af þremur seinustu leikjum sínum, sem verða allir á heimavelli þeirra á Vesturgötu á Akranesi. ÍA fellur ekki en verða að gera eitthvað fyrir næsta tímabil ef þeir vilja ekki falla á næsta tímabili.
Breyting: Engin
Seinustu 3 leikirnir:
02-03-2018 gegn Breiðablik
04-03-2018 gegn Vestri
09-03-2018 gegn FSu




