spot_img
HomeFréttirMargt til lista lagt

Margt til lista lagt

12:45

{mosimage}

 

(Ágúst var vígalegur í boxgallanum)

 

Körfuknattleiksmanninum Ágústi Hilmari Dearborn er margt til lista lagt. Á síðustu leiktíð lék hann með Þór Þorlákshöfn í Iceland Express deild karla og gerði þar 1,2 stig að meðaltali í leik. Þórsarar féllu í 1. deild að lokinni síðustu leiktíð en Ágúst lék upp yngri flokkana í Njarðvík en hann hefur m.a. staldrað við hjá Grindavík, Ármanni/Þrótti og Þór Þorlákshöfn.

 

Síðasta föstudag var haldin vegleg hnefaleikakeppni millum Íslands og Danmerkur í Hnefaleikahöllinni í Reykjanesbæ. Þar tók Ágúst þátt í sínum fyrsta hnefaleikabardaga og mátti sætta sig við ósigur en Guðjón Vilhelm hnefaleikafrömuður sagði Ágúst hafa staðið sig með mikilli prýði gegn erfiðum andstæðing.

 

Ágúst hefur nú snúið aftur á heimaslóðir og mun leika með Njarðvíkingum í Iceland Express deildinni í vetur.

 

Hnefaleikaíþróttin er í örum vexti á Suðurnesjum og jafnan ríkil mikil spenna og eftirvænting þegar Guðjón og félagar taka sig til og fá erlenda bardagamenn í heimsókn.

 

www.vf.is

 

{mosimage}

Fréttir
- Auglýsing -