HomeFréttirMargrét Kara á heimleið

Margrét Kara á heimleið

 

Körfuknattleikskonan knáa, Margrét Kara Sturludóttir, er að sögn á heimleið frá Noregi og ætlar hún sér að vera með á næsta tímabili. Margrét, sem var áður en hún fór í barneignaleyfi tímabilið 2012/2013 hafði á árunum áður bæði unnið sér inn fast sæti í landsliðinu og t.a.m. unnið titla bæði með liðum Keflavíkur og KR, vill að sama skapi ekkert gefa upp um það hvaða lið komi til greina fyrir hana að spila með. Viðræður hennar við lið víst enn á umræðustigi, en að sögn hennar segist hún hafa saknað boltans, svo það er ekki hvort, heldur hvaða lið það verður sem númer 9 klæðist næsta vetur.

 

Karfan mun að sjálfsögðu vera með fréttir af hvert Margrét fari um leið og það hefur verið ákveðið, en á meðan getum við happað hrósi að þessi öflugi, fyrrum besti leikmaður sé nú á leið aftur í deild þeirra bestu á Íslandi.

Fréttir
- Auglýsing -