Keflavík fær útileik í 8-liða úrslitum Poweradebikarsins þegar liðið mætir Fjölni, það er s.s. ekkert nýtt enda hafa Keflvíkingar barmað sér yfir heimaleikjaþurrðini í bikarnum síðustu ár. Auðvitað er þetta bara tilfallandi en ef minnið bregst okkur ekki þá hefur c.a. síðustu 20 ár verið dregið úr sömu bikarskálinni og við höldum að Keflvíkingurinn Falur Harðarson hafi flutt hana inn til landsins eftir eitthvert landsliðsverkefnið. Sagnfræðingar ranghvolfa eflaust augunum eftir ofangreint en nær komumst við ekki. Er þessi bikarskál sem Keflvíkingar, að við höldum, fluttu til landsins að leika félagið grátt í bikardrættinum ár eftir ár?
,,Já ef Falur hefur flutt þetta inn þá er hann búinn að ,,jinxa“ þetta fyrir okkur. Við þurfum bara að brjóta þessa skál eða að minnsta kosti að prófa einhverja nýja,“ sagði Magnús Þór Gunnarsson léttur á manninn í gær þegar Karfan.is náði tali af honum eftir bikardráttinn. Við gerðum talið þó fljótt öllu alvarlegra.
,,Við höfum aldrei mætt Fjölni í vetur en mætum þeim núna á fimmtudag og svo aftur í bikarnum. Þeir hafa ekkert komið á óvart enda með hörku lið og það gildir bara í deildinni að ef þú mætir ekki tilbúinn þá tapar þú, tala nú ekki um bikarleikina,“ sagði Magnús en er Keflavík orðið það slípað að það geti kastað því af öryggi fram að liðið ætli sér alla titla sem í boði eru?
,,Já við höfum verið í þessu í allan vetur, við höfum okkar markmið og erum á réttu róli. Við erum komnir áfram í bikarnum og höfum verið í 2.-3. sæti deildarinnar sem er bara frábært,“ en við slepptum ekki af honum takinu fyrr en við fengum hann til að giska á hverjir færu í undanúrslit, að því gefnu auðvitað að Magnús ætlar sér þangað með Keflvíkingum.
,,Ætli það séu ekki bara Snæfell, KFÍ og Tindastóll! Það verður a.m.k. ferðalag fyrir okkur í næstu umferð… nema Falur skyldi aflétta bölvuninni á þessari skál. En það skiptir samt ekki máli hvort þú fáir heima- eða útileik. Þetta eru allt góð lið og maður þekkir öll þessi íþróttahús svo þetta eru allt heimavellir fyrir mér og allir leikirnir eru jafn langir svo þetta verður bara stuð.“




