spot_img
HomeFréttirMagnús: Hittum allir eins og brjálæðingar á góðum degi

Magnús: Hittum allir eins og brjálæðingar á góðum degi

16:00

{mosimage}

Magnús Gunnarsson var eins og margir aðrir leikmenn Íslands í gær sjóðandi heitur. Hann skoraði 9 stig öll úr þriggja-stiga skotum. Magnús skoraði mikilvægar þriggja stiga körfur í seinni hálfleik þegar íslenska liðið var að stinga framúr.

,,Það er alltaf gaman að vinna landsleik og það gerist á hverjum degi þó það hafi gerst í sumar. Við hittum allir eins og brjálæðingar á góðum degi. Það sést bara hvernig við tókum seinni hálfleikinn við byrjuðum við bara að hitta og nenntum ekki að vera í þessu gaufi. Þá koma þessi úrslit. Við gerðum þetta líka í Lúxemborg í seinni hálfleiknum. Við erum mikið betri en úrslitin í Evrópukeppninni sýna. Það eru bjartir tímar framundan.” Mynd: [email protected]

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -