HomeFréttirMættir á Evrópumótið í Króatíu

Mættir á Evrópumótið í Króatíu

U18 ára landslið karla er mætt til Króatíu þar sem liðið leikur í B-deild Evrópumótsins (EuroBasket) í borgunum Rijeka og Opatija.

Íslenska liðið leikur í B-riðli mótsins og hefur leik á morgun, 24. júlí. Leikjadagskrá strákanna í riðlakeppninni er eftirfarandi:

  • 24. júlí (kl. 16:00): Ísland – Portúgal (Rijeka)
  • 25. júlí (kl. 16:00): Ísland – Tékkland (Opatija)
  • 26. júlí (kl. 08:30): Ísland – Aserbaídsjan (Rijeka)
  • 28. júlí (kl. 18:30): Ísland – Úkraína (Rijeka)
  • 29. júlí (kl. 11:00): Ísland – Pólland (Opatija)

Að lokinni riðlakeppni hefst 8-liða útsláttarkeppni ásamt umspilsleikjum föstudaginn 31. júlí, en mótinu lýkur sunnudaginn 2. ágúst.

Leikmannahóp Íslands skipa: Benóní Stefan Andrason (KR), Bóas Unnarsson (Njarðvík), Daníel Geir Snorrason (Stjarnan), Freyr Jökull Jónsson (Breiðablik), Jakob Kári Leifsson (Stjarnan), Jón Árni Gylfason (Skallagrímur), Leó Steinsen (Svíþjóð), Páll Gústaf Einarsson (Bandaríkin), Patrik Joe Birmingham (Bandaríkin), Róbert Óskarsson (Bandaríkin), Steinar Rafn Rafnarsson (Stjarnan) og Sturla Böðvarsson (Snæfell).

Þjálfari liðsins er Ísak Máni Wíum og honum til aðstoðar eru Mikael Máni Hrafnsson og Ismael Herrero Gonzalez. Mikil eftirvænting er fyrir gengi strákanna á mótinu næstu daga.

Fréttir
- Auglýsing -